Verkið fólst í gerð göngu og hjólastígs milli Veðurstofuvegar og Litluhlíðar ásamt því að steypta gangstétt og endurnýja kantstein í Háuhlíð. Einnig fól verkefnið í sér endurnýjun hitaveitulagna og háspennustrengja frá Veðurstofuvegi að Litluhlíð ásamt lýsingu fyrir göngu- og hjólastíg. Rífa þurfti upp núverandi yfirborð stígs og gangstéttar og jarðvegsskipta undir fyrirhuguðum göngu- og hjólastíg ásamt fullnaðarfrágangi veitulagna, gróðurs, yfirborðs og merkinga. Verklok eru vor 2021.