Verkkaupar:
Vegagerðin, Reykjavíkurborg, Orkuveita Reykjavíkur og Síminn
Verktakar:
Háfell, jarðvinna og lagnir
Eykt, steypt mannvirki
Verktími:
Maí 2004-maí 2006
Verkið:
Verkið fólst í að gera nýja Hringbraut í Reykjavík sunnan við núverandi Hringbraut (hér eftir kölluð gamla Hringbraut), neðan við lóð Landspítalans og BSÍ. Hin nýja Hringbraut er lögð undir núverandi Bústaðavegsbrú að austanverðu og tengd nýjum gatnamótum Njarðargötu vestanmegin. Nirðri akbraut gömlu Hringbrautar var lögð af og syðri akbraut gerð að tvístefnugötu. Endurgera þurfti allar tengingar inn á gömlu Hringbraut. Gert var Hringtorg á mótum Njarðargötu og Sólaeyjargötu. Byggð voru undirgöng undir Snorrabraut og undir suðvestur rampa og slaufu. Þá voru byggðar tvær göngubrýr yfir Hringbraut og ein yfir Njarðargötu ásamt göngubrú yfir Vatnsmýrartjörn. Byggðir voru stoðveggir undir og við brú á Bústaðavegi svo og við Miklubraut. Lagðar voru lagnir veitustofnana OR og LÍ og byggðar undirstöður fyrir aðflugsljós Flugmálastjórnar.
Verkefnastjóri Háfells var Valgeir Bergmann.
Verkstjóri var Daníel Gunnarsson.
Helstu Magntölur:
Vegagerð |
|
Skering í laus jarðgöng |
250.000 m³ |
Bergskeringar |
20.000 m³ |
Fylling |
140.000.m³ |
Neðara burðarlag |
35.000 m³ |
Efra burðarlag |
11.000 m³ |
Malbik |
115.000 m² |
Kantsteinar |
11.000 m |
Ofanvatnsræsi |
6.000 m |
Steypt mannvirki |
|
Mótafletir |
7.000 m² |
Steypustyrktarjárn |
220.000 kg |
Spennistál |
10.630 kg |
Smíðastál |
10.000 kg |
Steinsteypa |
1.770 m³ |
Steyptir staurar |
171 m |
Orkuveitan |
|
Pípulögn Hitaveitu |
3.160 m |
Vatnslagnir |
1.785 m |
Strengjalagnir |
6.920 m |
Ídráttarrör |
4.500 m |
LÍ |
|
Rör |
10.460 m |
Brunnar |
15 stk |
Strengir lagðir í skurð |
5.230 m |
Strengir dregnir í rör |
3.570 m |
Myndir frá framkvæmdum: