Háfell hefur unnið að gatnagerð í Urriðaholti. Þetta er stærsta einstaka gatnaframkvæmd sem íslenskt sveitarfélag hefur ráðist í. Gatnagerðin er óvenjuleg að því leyti að úrkoma sem fellur á göturnar er ekki leidd í lögnum og út í sjó heldur er ofanvatni komið út í jarðveginn þannig að vatnabúskapur Urriðaholtsvatns raskist ekki. Sérstakar varúðarráðstafanir eru á meðan á framkvæmdum stendur til að enginn spilliefni fari út í vatnið. Háfell, sem átti hagstæðasta tilboðið í lokuðu útboði, hefur fengið Loftorku í Garðabæ í lið með sér til að vinna verkið sem gert er ráð fyrir að ljúki haustið 2008. Verkefnastjóri: Valgeir Bergmann Verkstjóri: Ágúst Jakob Ólafsson Myndir frá framkvæmdum
|


