EnskaÍslenska

Sæbraut

Verkkaupar:

Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir.

Verktaki:

Háfell ehf

Verktími:

Janúar 2006 -

Verkið:

Verkið felst í að leggja nýja norður akbraut Sæbrautar norðan núverandi vegar og á kaflanum milli Laugarnesvegar og Kambsvegar alls 1,2 km.

Breyta á gatnamótum Laugarnesvegar - Sæbrautar og framlengja Klettagarða frá Héðinsgötu að Sæbraut, samhliða því leggst tenging við Héðinsgötu af.  Breikka á gatnamót (fjölga akreinum) Sundagarða og Dalbrautar við Sæbraut.  Þá skal gera nýja göngustíga um allt vinnusvæðið.

Byggja á tveggja metra háan hljóðvegg frá Laugarnesvegi að húsi nr. 58 við Kleppsveg alls um 620 metra. Öll jarðvinna og lagnavinna er innifalin í verkinu ásamt rifi húsa við Klettagarða.

Verkefnastjóri Háfells er Valgeir Bergmann.
Verkstjóri er Daníel Gunnarsson.

Helstu magntölur:

Bergskeringar  2.900 m³
Fylling úr skeringum  3.800 m³
Fylling úr námum30.000 m³
Fláafleygur16.900 m³
Ónothæft efni á losunarstað62.600 m³
Neðra burðarlag11.900 m³
Efra burðarlag  4.200 m³
Malbik41.300 m²
Gangstígar12.300 m
Kantsteinar10.800 m
Frágangur fláa19.400 m²
Hljóðveggur     660 m
Hitaveitulagnir  1.850 m
Vatnslagnir  2.300 m
Ídráttarrör  8.150 m
Símalagnir  1.700 m

Myndir frá framkvæmdum: