Starfsemi Háfells ehf felst einkum í almennri verktöku. Fyrirtækið hefur komið að vegagerð og gatnagerð víðsvegar á Íslandi og hefur stóraukið starfsemi sína á undanförnum 27 árum. Verkefni hafa verið umfangsmikil og þá einkum fyrir opinbera aðila. Fyrirtækið hefur til ráðstöfunar mikinn og öflugan tækjakost sem gerir kleift að takast á við margs konar verkefni. Hægt er að semja um leigu á tækjum og má hafa samband við okkur vegna frekari upplýsinga hvað það varðar. |


