EnskaÍslenska

Nesbraut, færsla Hringbrautar



Verkkaupar:

Vegagerðin, Reykjavíkurborg, Orkuveita Reykjavíkur og Síminn

Verktakar:

Háfell, jarðvinna og lagnir

Eykt, steypt mannvirki

Verktími:

Maí 2004-maí 2006

Verkið:

Verkið fólst í að gera nýja Hringbraut í Reykjavík sunnan við núverandi Hringbraut (hér eftir kölluð gamla Hringbraut), neðan við lóð Landspítalans og BSÍ.  Hin nýja Hringbraut er lögð undir núverandi Bústaðavegsbrú að austanverðu og tengd nýjum gatnamótum Njarðargötu vestanmegin. Nirðri akbraut gömlu Hringbrautar var lögð af og syðri akbraut gerð að tvístefnugötu.  Endurgera þurfti allar tengingar inn á gömlu Hringbraut.  Gert var Hringtorg á mótum Njarðargötu og Sólaeyjargötu.  Byggð voru undirgöng undir Snorrabraut og undir suðvestur rampa og slaufu.  Þá voru byggðar tvær göngubrýr yfir Hringbraut og ein yfir Njarðargötu ásamt göngubrú yfir Vatnsmýrartjörn.   Byggðir voru stoðveggir undir og við brú á Bústaðavegi svo og við Miklubraut.  Lagðar voru lagnir veitustofnana OR og LÍ og byggðar undirstöður fyrir aðflugsljós Flugmálastjórnar.

Verkefnastjóri Háfells var Valgeir Bergmann.
Verkstjóri var Daníel Gunnarsson.

Helstu Magntölur:

Vegagerð

Skering í laus jarðgöng250.000 m³
Bergskeringar  20.000 m³

Fylling

140.000.m³
Neðara burðarlag  35.000 m³
Efra burðarlag  11.000 m³
Malbik115.000 m²
Kantsteinar  11.000 m
Ofanvatnsræsi    6.000 m

Steypt mannvirki
Mótafletir    7.000 m²
Steypustyrktarjárn       220.000 kg
Spennistál  10.630 kg
Smíðastál  10.000 kg
Steinsteypa    1.770 m³
Steyptir staurar       171 m

Orkuveitan
Pípulögn Hitaveitu3.160 m
Vatnslagnir1.785 m
Strengjalagnir6.920 m
Ídráttarrör4.500 m
 
Rör 10.460 m
Brunnar        15 stk
Strengir lagðir í skurð   5.230 m
Strengir dregnir í rör   3.570 m

Myndir frá framkvæmdum