EnskaÍslenska
23.02.2010 |
Háfell hlýtur Steinsteypuverðlaunin 2010

Á hinum árlega Steinsteypudegi sem haldin var fyrir skemmstu, afhenti forseti Íslands Steinsteypuverðlaunin 2010 fyrir framúrskarandi steinsteypt mannvirki frá síðustu fimm árum.  Alls bárust tilnefningar um 22 mannvirki frá ýmsum aðilum innan byggingageirans. Valið annaðist nefnd sem var skipuð fulltrúum Arkitektafélagsins, Verkfræðingafélagsins, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Listaháskólans undir forystu Steinsteypufélagsins. Til grundvallar lá m.a. að mannvirkið væri framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna og handverks.

Göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut urðu fyrir valinu en bæði hönnun og handverk þykir þar til fyrirmyndar og þykja þær því verðugar þessarar viðurkenningar.  Það voru fulltrúar verkkaupanna Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar, arkitektanna Studio Granda, verkfræðihönnuða frá Eflu, fulltrúa frá Eykt auk þeirra Skarphéðins, forstjóra Háfells og Jóhanns, framkvæmdastjóra Háfells, sem veittu verðlaununum móttöku.

Það var að frumkvæði Dr. Ólafs H. Wallevik hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem stjórn Steinsteypufélags Íslands ákvað að velja steinsteypt mannvirki ársins, en þetta er í fyrsta skiptið sem verðlaunin eru veitt. Stefnt er að því að verðlaunin verði veitt árlega hér eftir, en verðlaunin þetta árið voru styrkt af Íbúðalánasjóði og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Til baka