Starfsmenn vefritsins ""sksiglo.is" heimsóttu Héðinsfjarðargöngin í fylgd Valgeirs Bergmann verkefnastjóra á dögunum en Valgeir lýsti verkinu í smáatriðum á leiðinni. Alls eru starfsmenn Háfells tæplega 50 sem vinna við göngin, þar af eru um fjórtán starfsmenn sem vinna við lagnagerð og vinna þeir á vöktum allan sólarhringinn. Nú eru þarna einnig fjórir starfsmenn frá Metrostav og undirverktakar þeirra við að klæða göngin einangrunarplötum sem síðar verður múrhúðað yfir. Að auki eru þarna starfsmenn Bás við plötufestingar, starfsmenn frá Rarik við háspennukapaltengingar að ógleymdum starfsmönnum Vatnsklæðninga ehf, sem starfa á vöktum við vatnsklæðningar inn í göngunum. Búist er við að verklok standist, en malbikað verður í lok ágústmánaðar og verða göngin opnuð til umferðar í október 2010 þó svo að ef til vill verði einhver smáatriði eftir. |