EnskaÍslenska
7.10.2009 |
Mamma Metrostaff

Á vef sksiglo.is í gær mátti lesa litla frétt um hana Sigríði okkar Hallgrímsdóttur og sjá myndir af henni og hennar nánasta samstarfsfólki. Sigríður hefur unnið fyrir Háfell í rúm þrjú ár í tengslum við Héðinsfjarðargöngin. Hún hefur löngum verið köllum "mamma metrostaff" en hún er bústýra hjá okkur á gamla Hótel Læk, þar sem við erum með "vinnubúðir", og hún hefur séð um að vinnumenn hjá Háfelli og Metrostaf hafi nóg að bíta og brenna og að allt sé í góðu lagi varðandi aðbúnað þeirra.  Henni til aðstoðar nú eru þau Vilhelm Cahel og Rebekka Viggósdóttir. Vilhelm eða Villi vann lengi við göngin fyrir Metrostaf  og að sögn Sirrýjar þá er hann liðtækur við flest störf.

Til baka